Skólamál

Á vegum aðildarfélaga starfa 3-7 manna skólamálanefndir sem sinna faglegum málefnum fyrir félagsmenn þeirra.

Hlutverk skólamálanefnda er:

  1. Að fjalla um fagleg málefni og skólamál í samráði við stjórn og skólamálaráð KÍ,
  2. að vinna að eflingu kennaramenntunar og endurmenntunar félagsmanna,
  3. að annast tengsl við kennslu- og faggreinafélög.

Skólamálanefndir aðildarfélaga mynda skólamálaráð ásamt formanni / varaformanni KÍ sem jafnframt er formaður skólamálaráðs. Skólamálaráð heldur a.m.k. einn fund á ári. Formenn skólamálanefnda aðildarfélaga og formaður skólamálaráðs mynda framkvæmdastjórn.

Hlutverk skólamálaráðs er:

  1. Að fjalla um uppeldis- og skólamál á hverjum tíma og álykta um þau til stjórnar KÍ,
  2. að vera stjórn til ráðuneytis um stefnumörkun á hverjum tíma,
  3. að fara með mál sem tengjast faglegri menntun félagsmanna,
  4. að annast tengsl við fagfélög og halda fundi með þeim eftir þörfum,
  5. að undirbúa í samráði við stjórn KÍ ráðstefnur, fræðslufundi og námskeið um skóla- og menntamál eftir því sem við á hverjum tíma,
  6. að fjalla um og túlka skólastefnu KÍ og gera tillögur um framkvæmd stefnunnar og markmið.



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli