Fyrir þá sem vantar er reikningsnúmer Orlofssjóðs eftirfarandi: 0516-26-14000 og kennitalan er: 701090-1879.
Yfir vetrartímann er hægt að leigja orlofshúsnæði allt að 4 mánuði fram í tímann. Fyrsta hvers mánaðar kl. 12:00 á hádegi er hægt að bóka fjórða mánuðinn. Bókað er á Mínum síðum og þar gildir, eins og svo oft, að fyrstur kemur - fyrstur fær.
Áríðandi er að félagsmenn prenti út leigusamning fyrir leigu áður en farið er í orlofshús/íbúð, þar sem á honum eru mikilvægar upplýsingar fyrir leigutaka. Athugið að prenta hann aftur út rétt áður en leiga hefst, þar sem einhverjar forsendur geta hafa breyst á tímanum frá því að bókað var og þar til farið er.
Að gefnu tilefni vill stjórn Orlofssjóðs ítreka að félagsmenn gangi vel um orlofshús á vegum KÍ. Oftast nær er frágangur leigutaka til fyrirmyndar en að undanförnu hefur verið töluvert um kvartanir yfir slæmri umgengni í húsum sambandsins, sérstaklega í styttri leigu. Þó eingöngu sé gist í eina nótt þarf að þrífa húsnæðið og þó þrif séu keypt þarf samt sem áður að ganga frá nokkrum atriðum. Sjá hér þrifablað fyrir Sóleyjargötu og hér fyrir Ásabyggð, Heiðarbyggð og Kjarnabyggð. - MUNA AÐ ÞRÍFA LEIGUHÚS Í LOK DVALAR -
Á orlofsvefnum eru í boði allt árið: afsláttarmiðar á hótel og gjafabréf í flug. Sumartímabilið 2013 er frá 29. maí til 30. ágúst.
Fyrir þá sem ekki vita ávinna félagsmenn sér 24 orlofspunkta á ári.