
5. jún. 2013
Loftið á Menntavísindasviði HÍ við Stakkahlíð var þrungið eldmóði og áhuga þegar hundruð náttúrufræðikennara á öllum skólastigum komu saman til að fræðast um nýjungar, hlýða á fyrirlestra, kynningar og smiðjur á málþingi um nám og kennslu í náttúrufræðigreinum á 21. öldinni. Helst var kvartað undan því að ekki væri hægt að vera á fleiri en einum stað í einu þar svo margt áhugavert var í gangi á sama tíma.
Lesa meira
4. jún. 2013
Í síðasta Vikupósti FF á önninni gefur Anna Jóna Guðmundsdóttir sálfræðikennari, 10 góð ráð til að vera góður og hamingjusamur kennari. Hún minnir kennara á að kennsla er mjög innihaldsríkt starf og þeir þurfi að hafa í huga að þeir hafi aðgang að fólki sem sækir þekkingu til kennarans, ber fyrir honum virðingu og er komið til að læra af honum. Ekki bara til að læra fagið sem hann kennir heldur líka til að læra vinnubrögð, víðsýni og jafnvel að takast á við siðferðleg álitamál.
Lesa meira
4. jún. 2013
Kennari maímánaðar á vef Félags framhaldsskólakennara heitir Þorbjörn Sigurbjörnsson. Hann kennir viðskiptagreinar við Verzlunarskóla Íslands. Hann segir frá viðhorfum sínum til náms og kennslu. Þetta er fjórða myndbandið sem FF hefur látið gera í vetur um kennara og störf þeirra. Kennari mánaðarins er hluti af kynningarátaki FF sem hefur þann tilgang að vekja athygli á störfum kennara og viðhorfum þeirra til starfs síns og starfsaðstæðna. Vikupóstarnir, sem eru stuttar greinar, hafa vakið mikla athygli og sýna svo ekki verður um villst að kennurum liggur mikið á hjarta.
Lesa meira
31. maí 2013
Danska ríkisstjórnin greip sem kunnugt er inn í verkbann sveitarfélaga (KL) á grunnskólakennara (DLF) í apríl sl. með lagasetningu. Sá gerningur felur í meginatriðum í sér skerðingu á undirbúningstíma kennara og fjölgun kennslustunda til að ná niður kostnaði við breytingar á lögum um grunnskóla, „sólarlag“ er sett á 60 ára afslátt, vinnutímakafla kjarasamninga er kippt út og tímaskráningakerfi (stimpilklukkukerfi) tekið upp í skólum.
Lesa meira
31. maí 2013
Mennta- og menningarmálaráðuneytið efnir til málþings um námsmat í nýrri menntastefnu í samstarfi við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga í Flensborgarskóla 30. ágúst nk. Námsmat í nýrri menntastefnu grundvallast á hæfni nemenda og er kynnt í nýjum aðalnámskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
Lesa meiraLesa allar fréttir