
27. feb. 2009
Vinnuumhverfisnefnd KÍ vill koma nokkrum atriðum á framfæri um vinnuvernd á óvissutímum. Kennarar og stjórnendur skóla verða án efa varir við ýmis vandamál og erfiðleika tengda því ástandi sem nú ríkir í þjóðfélaginu. Rannsóknir hafa sýnt að vinnuvernd og heilsuefling á vinnustöðum hefur áhrif á aðstæður og líðan fólks, einnig á óvissutímum. Þeir vinnustaðir sem sinna vinnuvernd vel og huga þannig að öryggi, heilsu og líðan starfsmanna sinna eru líklegri til að vegna betur þegar efnahagsleg áföll dynja yfir.
Lesa meira
26. feb. 2009
Ferðablað Orlofssjóðs er komið út.
Lesa meira
24. feb. 2009
Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands auglýsir styrki til félagsmanna sinna sem vinna að rannsóknum, þróunarverkefnum og nýbreytni í kennsluháttum í grunnskólum skólaárið 2009-2010. Umsóknir sendist til Verkefna- og námsstyrkjasjóðs FG og SÍ, Laufásvegi 81, 101 Reykjavík, í síðasta lagi 1. mars 2009.
Lesa meira
20. feb. 2009
Sumarið 2009 verða 143 orlofshús/leigueiningar í boði á 102 stöðum víðsvegar um landið. Alls verða 1.500 leiguvikur í boði frá 30. maí til 29. ágúst. Leigunni er skipt í vikuleigu sem er nú í punktastýrðri úthlutun og flakkaraleigu sem hefst 1. maí. Stjórn Orlofssjóðs ákvað að bæta verulega við innlendum orlofstilboðum fyrir árið 2009 og verða 23 fleiri leigustaðir í boði nú í sumar en í fyrra.
Lesa meira19. feb. 2009
Hægt er að óska eftir því að halda áfram að greiða til KÍ á atvinnuleysisbótum og mælir KÍ með að félagsmenn geri það. Umsækjandinn þarf að merkja í þar tilgerðan reit á umsóknareyðublaði um atvinnuleysisbætur og þá sér Vinnumálastofnun um að koma greiðslunni til KÍ. Með því að óska eftir því heldur félagsmaður helstu réttindum sínum hjá stéttarfélaginu og aðgangi að þjónustu þess.Ef félagsmaður ákveður hins vegar að greiða ekki félagsgjöldin glatast ýmis réttindi.
Lesa meira
19. feb. 2009
Ráðstefna um heimspeki í skólum verður haldin við Háskóla Íslands 27. og 28. febrúar. Dagana á undan, 25. og 26. febrúar, verður vinnusmiðja um sama efni. Vinnusmiðjan hefst kl. 15 báða dagana og stendur til 18 fyrri daginn og 19 seinni daginn. Það er von ráðstefnuhaldara að tímasetningin geri sem flestum kennurum í leik-, grunn- og framhaldsskólum kleift að sækja vinnusmiðjuna.
Lesa meira17. feb. 2009
Þetta kemur meðal annars fram í nýútgefinni skýrslu frá Norrænu ráðherranefndinni. Í frétt í Jyllandsposten í dag skrifar blaðamaðurinn Lise Brix um skýrsluna og kaup og kjör danskra grunnskólakennara. „Danskir kennarar þéna mest og vinna minnst“ er titill fréttarinnar. Fram kemur að þeir kenni „fæstu tímana á bestu laununum“ ef borið er saman við norræn starfssystkini, en engu að síður sé „kennarastarfið óvinsælt í Danmörku.“
Lesa meira17. feb. 2009
Föstudaginn 20. febrúar stendur Rannsóknastofa í vinnuvernd fyrir hádegisfyrirlestri í Odda, Háskóla Íslands, stofu 201 á milli 12 og 13. Fyrirlesari er Guðmundur Ingi Kjerúlf, verkefnisstjóri hjá fræðsludeild Vinnueftirlitsins.
Lesa meira
16. feb. 2009
Til þess að veita innsýn í kennsluefnið býður höfundur upp á þriggja klukkustunda námskeið sem ætti að gefa glögga hugmynd um hvernig nýta má efnið til þess að setja saman fjölbreyttar tónlistar- og hreyfi stundir.
Lesa meira
11. feb. 2009
Rannsóknarstofa um skóla án aðgreiningar (RSÁA), í samvinnu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og menntaráð Reykjavíkurborgar, býður til samræðu um skólastefnuna skóli án aðgreiningar fimmtudaginn 12. febrúar næstkomandi kl. 13.15–17.00 í fyrirlestrarsalnum Skriðu í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Lesa meira
9. feb. 2009
Ársfundur Félags tónlistarskólakennara verður haldinn laugardaginn 14. febrúar 2009 frá kl. 13.00-15.00 á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, Reykjavík.
Lesa meira
9. feb. 2009
Á verkstæði þann 26. febrúar nk. mun Helle Fisker kynna fyrir grunnskólakennurum hvernig svara má ólíkum námsstílum (learning styles) með því að skapa námsumhverfi sem kemur til móts við fjölbreyttar þarfir nemenda. Verkstæðið er á vegum SRR í samstarfi við Snælandsskóla.
Lesa meira
9. feb. 2009
Félag náms- og starfsráðgjafa hefur sent frá sér ályktun þar sem félagsmenn lýsa yfir áhyggjum af stöðu efnahags- og atvinnumála. Brýnt sé að efla faglega ráðgjöf og styðja börn og ungmenni í náms- og starfsvali og einnig sé það sjálfsagt réttindamál að allir sem missa atvinnuna eigi aðgang að slíkri ráðgjöf. Félagsmenn FNS hafa að undanförnu fundið fyrir aukinni aðsókn í þá tegund ráðgjafar sem þeir veita og skora á stjórnvöld að gera allt sem þau geta til að tryggja góðan aðbúnað barna og ungmenna og grípa til enn frekari aðgerða til að koma í veg fyrir vaxandi atvinnuleysi.
Lesa meira6. feb. 2009
Perimeter stofnunin í Ontario í Kanada býður nemendum sem hyggja á háskólanám í eðlisfræði að sækja um þátttöku í tveggja vikna alþjóðlegum sumarbúðum um kennilega eðlisfræði samtímans. Þá er eðlisfræðikennurum boðin þátttaka í einnar viku vinnustofu.
Lesa meira
6. feb. 2009
Dagur leikskólans er í dag, 6. febrúar, og er nú haldinn hátíðlegur í annað sinn. Félag leikskólakennara, í samvinnu við menntamálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélag og Heimili og skóla kom deginum á laggirnar í fyrra undir yfirskriftinni „Við bjóðum góðan dag – alla daga“. Markmiðið með deginum er að vekja jákvæða umræðu og athygli á því fjölbreytta starfi sem unnið er í leikskólum. Það er bæði gaman og gagnlegt að nema og kenna í leikskólum eins og Björg Bjarnadóttir formaður Félags leikskólakennara og Ingibjörg Kristleifsdóttir varaformaður benda á í grein sem þær hafa skrifað í tilefni dagsins.
Lesa meira
5. feb. 2009
Í gær, 4. febrúar 2009, hófst „Lífshlaupið“ í annað sinn á vegum Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, ÍSÍ. Lífshlaupið mun fara fram dagana 4. – 24. febrúar en markmið verkefnisins er að hvetja landsmenn til daglegrar hreyfingar. Nánari upplýsingar um Lífshlaupið má finna á vefsíðunni www.lifshlaupid.is en meðal annars er hægt að taka þátt í vinnustaðakeppni og hægt er að skrá lið inn allt til síðasta dags.
Lesa meira
5. feb. 2009
Leikskólar um allt land halda Dag leikskólans hátíðlegan á morgun. Í Kópavogi er yfirskrift dagsins að „varpa ljósi á barnið í leikskólanum“. Fjölbreytt dagskrá leikskóla í Kópavogi inniheldur meðal annars ljósagjörning, kertafleytingu og fjársjóðsleit með vasaljós.
Lesa meira5. feb. 2009
Á Degi stærðfræðinnar 6. febrúar verða nýlegar meistaraprófsritgerðir í stærðfræði kynntar á málþingi í húsnæði menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð í Reykjavík. Málþingið er frá kl. 13.30 – 16.30 í stofu H 207.
Lesa meira
5. feb. 2009
Dagur stærðfræðinnar er haldinn fyrsta föstudag í febrúar ár hvert. Í ár ber dag stærðfræðinnar upp föstudaginn 6. febrúar og er þema dagsins að þessu sinni þríhyrningar.
Lesa meira5. feb. 2009
Íslenska stærðfræðafélagið, Flötur samtök stærðfræðikennara og Félag raungreinakennara boða til málþings um ný skólalög og stærðfræðimenntun fimmtudaginn 5. febrúar kl. 16.00 í stofu HT-105 í Háskólatorgi, í kjallaranum undir Háskólamatstofunni. Tilgangur málþingsins er að kynna ný lög um grunn-, framhalds- og háskóla sem tóku gildi á síðasta ári og ræða hvernig stærðfræðinni muni vegna í þessu nýja lagaumhverfi.
Lesa meira
4. feb. 2009
Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 12. mars nk. á hótel Loftleiðum, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 9:00 og stendur allan daginn.
Lesa meira3. feb. 2009
Félag framhaldsskólakennara, FF, heldur fræðslunámskeið fyrir trúnaðarmenn í framhaldsskólum föstudaginn 13. febrúar nk. í Hvammi á Grand hóteli, Reykjavík.
Lesa meira
3. feb. 2009
Þann 10. desember sl. varð mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna sextíu ára. Á grundvelli yfirlýsingarinnar hafa þjóðir heims fullgilt mannréttindasamninga sem hafa verið fyrirmynd mannréttindaákvæða í stjórnarskrám ríkjanna. Ísland er eitt þeirra ríkja. Í tilefni af þessum tímamótum og til að styrkja mannréttindastarf í skólum hefur menntamálaráðuneytið gefið út skýrsluna Mannréttindafræðsla á Íslandi - tillögur um mannréttindafræðslu í grunn- og framhaldsskólum. Í skýrslunni er lagt er til að hver skóli geri framkvæmdaáætlun í mannréttindafræðslu.
Lesa meira
2. feb. 2009
Guðbjartur Hannesson fyrrverandi skólastjóri í Grundaskóla á Akranesi og þingmaður Samfylkingar frá 2007 verður forseti Alþingis í nýrri ríkisstjórn. Þá hefur nýr menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, verið stundakennari við Háskóla Íslands auk þess að kenna við Endurmenntun sömu stofnunar, símenntunarmiðstöðvar og Mími tómstundaskóla.
Lesa meira
2. feb. 2009
Dagur leikskólans er 6. febrúar en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara á Íslandi fyrstu samtök sín. Leikskólar um allt land halda daginn hátíðlegan með ýmsum hætti og í samvinnu kennara, foreldra, nemenda og skólayfirvalda.
Lesa meira