
26. nóv. 2008
Skrifstofu KÍ hafa borist fyrirspurnir frá félagsmönnum um stöðu sjóða KÍ og aðildarfélaga þess í kjölfar yfirtöku ríkisins á stóru bönkunum þremur. KÍ er með mest af sínum viðskiptum hjá BYR og að stórum hluta á venjulegum innlánsreikningum með góðri ávöxtun.
Lesa meira
26. nóv. 2008
Yfirlýsing frá ASÍ, BSRB, BHM og KÍ.
Lesa meira
26. nóv. 2008
Þann 1. desember standa Félag leikskólakennara og RannUng fyrir ráðstefnu um rannsóknir í menntunarfræðum ungra barna.
Lesa meira
25. nóv. 2008
Þrátt fyrir aðhaldsaðgerðir í rekstri Sjúkrasjóðs á árinu eru úthlutanir úr sjóðnum ennþá umfram tekjur og er því óhjákvæmilegt að þrengja reglur sjóðsins enn meira en gert var í upphafi árs. Frá og með 1. janúar 2009 verða styrkir vegna tannlæknakostnaðar felldir niður.
Lesa meira
25. nóv. 2008
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi þann 21.11.2008 að lagt verði fyrir Alþingi frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, um að aðlögunarheimildir aðildarsamnings EES frá 2007 um aðgengi ríkisborgara Búlgaríu og Rúmeníu að íslenskum vinnumarkaði verði áfram nýttar fram til 1. janúar 2012. Frumvarpið er lagt fram í ljósi þeirrar óvissu sem ríkir um stöðu og þróun á innlendum vinnumarkaði á næstu mánuðum vegna þrenginga í efnahagslífi þjóðarinnar.
Lesa meira
20. nóv. 2008
Viðskiptaráð hefur set fram sjö lykilatriði sem það telur skipta sérlega miklu máli fyrir framtíð íslensks efnahagslífs. Nú sem aldrei fyrr þarf að setja menntun í forgang að mati ráðsins.
Lesa meira
20. nóv. 2008
Hægt er að skoða annaruppbót/persónuuppbót á síðu ki.is.
Lesa meira
17. nóv. 2008
Á fundinum verður fjallað um stöðu miðaldra og eldra fólks þegar þrengir að á vinnumarkaði.
Lesa meira
14. nóv. 2008
Námskeiðið er fyrir kennara og annað starfsfólk grunnskóla og er haldið í Gerðubergi, A sal á 2. hæð.
Lesa meira
13. nóv. 2008
Fjallað verður um UT og skólastarf frá ýmsum sjónarhornum með það að markmiði að þátttakendur fái skýrari sýn á og gagn tæknistuðnings í námi og kennslu og stefnu á stjórnenda skólastofnana um þróun í tæknistuddu námi í framtíðinni.
Lesa meira
13. nóv. 2008
Íslenskt samfélag stendur á tímamótum vegna grundavallarbreytinga í efnhagskerfi þjóðarinnar. Aðilar Reykjavíkurborgar sem sérstaklega vinna með börnum og unglingum hafa tekið höndum saman undir yfirskriftinni Börnin í borginni.
Lesa meira
13. nóv. 2008
Heilsustefnan nær til ársloka 2011 og er markmið hennar að skapa samfélagslegar forsendur sem stuðla að bættri heilsu allra landsmanna. Í heilsustefnunni er lögð sérstök áhersla á nokkra áhrifaþætti heilbrigðis, þ.e. hreyfingu, næringu og geðrækt, með það fyrir augum að koma í veg fyrir sjúkdóma og þá þjóðfélagslegu byrði sem þeim fylgja.
Lesa meira
13. nóv. 2008
Vinnueftirlitið heldur áhugaverð námskeið í nóvember og desember (sjá www.vinnueftirlit.is) og vill KÍ sérstaklega benda skólum á tvö námskeið, Vellíðan í vinnunni (18. nóvember) og Áhættumat fyrir alla (26. nóvember).
Lesa meira
13. nóv. 2008
Umfjöllunarefni ráðstefnunnar er Foreldrahlutverkið og foreldrafærni.
Lesa meira
11. nóv. 2008
Félag framhaldsskólakennara hélt aukafulltrúafund á Grand hóteli í Reykjavík sl. föstudag. Á fundinum voru samþykktar tvær ályktanir, annars vegar um brýnar aðgerðir í menntamálum vegna samfélagsþrenginga og hins vegar um stöðu framhaldsskólans í tengslum við útfærslu og framkvæmd nýrra menntalaga.
Lesa meira
11. nóv. 2008
Vegna ítrekaðra fyrirspurna um námsleyfi vilja fulltrúar endurmenntunarsjóða benda á að öllum umsóknum verður svarað fyrir jól.
Lesa meira
10. nóv. 2008
Vegna þeirra þrenginga sem nú steðja að þjóðinni býður Vinnueftirlitið fyrirtækjum upp á fyrirlestra um vinnuvernd með sérstakri áherslu á sálfélagslegt vinnuumhverfi. Þessi fyrirlestur er að vissu marki sniðinn að þörfum hvers vinnustaðar fyrir sig og getur verði allt frá hálfri klukkustund til tveggja tíma langur, allt eftir óskum og þörfum vinnustaðarins.
Lesa meira
7. nóv. 2008
Samkvæmt könnun á www.ki.is vilja 87% svarenda fá sendar stuttar fréttir sendar mánaðarlega í tölvupósti frá Kennarasambandinu. Þar af vilja 56% fá fréttirnar sem slóð á fréttabréf en 31% vilja frekar fá fréttirnar inni í tölvupóstinum. Loks vilja 13% ekki fá sendar fréttir. Fjöldi svara var fimm hundruð.
Lesa meira
6. nóv. 2008
Stjórn, samninganefnd og skólamálanefnd Félags framhaldsskólakennara boða til fundar með fulltrúum frá öllum félagsdeildum framhaldsskóla föstudaginn 7. nóvember nk. í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík kl. 9:00 – 16:00.
Lesa meira
5. nóv. 2008
Áttu barn eða ungling sem finnst gaman að ferðast um á netinu? Ef svo er þá átt þú og barnið þitt stefnumót við SAFT og Símann á Háskólatorgi, laugardaginn 8. nóvember frá kl. 10.30-14.00. Þar munum við taka á þessum málum á skemmtilegan og fræðandi hátt.
Lesa meira
5. nóv. 2008
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á ársþing Samtaka um skólaþróun sem hefst síðdegis á föstudaginn og er stoppfullt af spennandi umræðum og erindum auk hátíðarkvöldverðar og fleiri viðburða.
Lesa meira5. nóv. 2008
Fimmtudaginn 6. nóvember nk. verður haldin lokaráðstefna tilraunaverkefnisins GEMS – Guidance for Educators, Mentors and Students á Hilton Reykjavik Nordica Hotel, Suðurlandsbraut 2.
Lesa meira4. nóv. 2008
Þetta er yfirskrift morgunverðarfundar Félags forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ sem haldinn verður þann 11. nóvember kl. 8.30-10.00 á Grand hótel í Reykjavík.
Lesa meira