Eftir mánuðum

29. nóv. 2007

Kaupmáttur launa rýrnað um 5,6%

Í nýlegu fréttabréfi frá kjararannsóknarnefnd (KOS) kom fram að kaupmáttur launa grunnskólakennara og skólastjóra í Reykjavík hafi rýrnað um 5,6% frá árinu 2005 á meðan kaupmáttur almennt, mældur með launavísitölu Hagstofunnar, hefur vaxið um rúm 8% fram á mitt ár 2007.
Lesa meira

26. nóv. 2007

Við verðum að hugsa dæmið til enda

Ingibjörg Óðinsdóttir skrifar grein í Morgunblaðið fyrr í þessum mánuði þar sem hún vekur athygli á ástandinu í grunnskólum landsins.
Lesa meira

22. nóv. 2007

Margt til framfara þótt ekki sé samstaða í öllum atriðum

Stjórn KÍ um árangur 10 skrefa samkomulagsins.
Lesa meira

21. nóv. 2007

5. ráðstefna Norræna félagsins gegn illri meðferð á börnum

5. ráðstefna Norræna félagsins gegn illri meðferð á börnum verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica 18. til 21. maí 2008. Þema ráðstefnunnar er Börn og vanræksla: Þarfir - Skyldur - Ábyrgð.
Lesa meira

21. nóv. 2007

Ályktun frá Kennarafélagi Verkmenntaskólans á Akureyri

Fundur Kennarafélags Verkmenntaskólans á Akureyri lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri stöðu sem launamál framhaldsskólakennara eru í. Samkvæmt gögnum Kjararannsóknarnefndar opinberra starfsmanna kemur enn á ný í ljós að í lok samningstíma hafa laun þessarar stéttar dregist verulega aftur úr viðmiðunarhópum.
Lesa meira

21. nóv. 2007

Kynning í KHÍ á stafrænu námsefni

Kennurum í eldri bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum er boðið á kynningu á nýju stafrænu námsefni. Kynning verður haldin í Kennaraháskóla Íslands 23. nóvember 2007 kl. 13:30 -16:30.
Lesa meira

14. nóv. 2007

Nú er ég reiður!

Í grein í Fréttablaðinu í dag fjallar Skúli Gunnarsson um málefni grunnskóla og er heitt í hamsi. „Nú er ég reiður!“ hefur Skúli mál sitt og heldur áfram: „Þetta er réttlát reiði og ég spyr í fullri alvöru: Ætla fræðsluyfirvöld að láta grunnskólann drabbast niður í ekki neitt á næstu misserum?“
Lesa meira

13. nóv. 2007

Málþing 16. nóvember

Boðið er til kynningar og umræðna um vald, lýðræði og virka samfélagsþátttöku á málþingi í Norræna húsinu föstudaginn 16. nóvember nk. kl. 13:00 – 17:00. Þátttaka er öllum heimil og án endurgjalds.
Lesa meira

13. nóv. 2007

Fimmtíu manns mættu í skólagöngu KÍ og KHÍ sem farin var síðasta laugardag frá Kennarahúsinu

Á yfirstandandi háskólaári er þess minnst að 100 ár eru liðin frá því að Kennaraskóli Íslands – núverandi Kennaraháskóli Íslands – var stofnaður og sett voru fyrstu fræðslulög á Íslandi. Í tilefni þessara merkisaburða í menntunarsögu þjóðarinnar standa Kennaraháskólinn og Kennarasamband Íslands sameiginlega að fjölbreyttri dagskrá sem hófst með „skólagöngunni“ með Guðjóni Friðrikssyni sagnfræðingi laugardaginn 10. nóvember.
Lesa meira

12. nóv. 2007

Málþing á vegum Félags leikskólakennara í samvinnu við Félag leikskólafulltrúa

Þann 23. nóvember stendur Félags leikskólakennara í samvinnu við Félag leikskólafulltrúa fyrir málþinginu Hátt til lofts og vítt til veggja? Börn og byggingar.
Lesa meira

9. nóv. 2007

Skólaganga laugardaginn 10. nóvember!

Laugardaginn 10. nóvember kl. 10:30 bjóða Kennaraháskóli Íslands og Kennarasamband Íslands til skólagöngu með Guðjóni Friðrikssyni sagnfræðingi.
Lesa meira

8. nóv. 2007

Hádegisfyrirlestur 9. nóvember um vinnuumhverfi í leikskólum

Þann 9. nóvember kl. 12.15 mun Ágústa Guðmarsdóttir sjúkraþjálfari hjá InPro og MS í líf- og læknavísindum halda erindi í hádegisfyrirlestraröð Rannsóknastofu í vinnuvernd, sem ber yfirskriftina: Vinnuumhverfi í leikskólum. Orsakir álags á starfsmenn.
Lesa meira

8. nóv. 2007

Fulltrúafundur FF 9. nóvember

Fulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara verður haldinn föstudaginn 9. nóvember í þingsal 1 (jarðhæð) á Hótel Loftleiðum. Fundurinn hefst kl. 9:30 og honum lýkur 16:00.
Lesa meira

8. nóv. 2007

Vetrarnámskeið hjá Vinnusmiðjunni

Þau verða 24.-25. nóvember, 12.-.13. janúar og svo í mars.
Lesa meira

2. nóv. 2007

Málþing 9. nóvember

Í tilefni af útkomu bókar Sigrúnar Aðalbjarnardóttur prófessors „Virðing og umhyggja – Ákall 21. aldar“, sem Heimskringla – Háskólaforlag Máls og menningar gefur út, gangast Félagsvísindadeild og rannsóknasetrið Lífshættir barna og ungmenna fyrir málþingi föstudaginn 9. nóvember 2007.
Lesa meira

1. nóv. 2007

Fræðsluvefur um lífeyrismál gottadvita.is opnaður

Mánudaginn 29. október s.l opnaði Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, nýjan fræðsluvef Landssamtaka lífeyrissjóða um lífeyrismál. Vefslóðin er ,,gottadvita.is.” Á heimasíðum flestra lífeyrissjóða er hnappur sem hægt er að smella á til að færast á fræðsluvefinn.
Lesa meira




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli