Félagið er eitt af sjö aðildarfélögum Kennarsambands Íslands með um 1.700 félagsmenn. Félagið var stofnað 12. nóvember 1999 en daginn áður voru forverar þess, Hið íslenska kennarafélag og Félag framhaldsskólakennara, hið eldra, lögð niður. Hlutverk Félags framhaldsskólakennara er að fara með málefni félagsmanna Kennarsambands Íslands sem sinna kennslu eða ráðgjöf í framhaldsskólum og gera kjarasamninga fyrir félagið.