Störf og starfslýsingar

Störf á vegum Félags framhaldsskólakennara og starfslýsingar

Formaður (100%)

Formaður stjórnar og samninganefndar FF, forsvar um samningagerð við ríki og einkaaðila, aðstoð og ráðgjöf við samningagerð í skólum, gerð stefnumótunar og viðræðuáætlana. Hann ber ábyrgð á daglegri starfsemi félagsins og hefur yfirumsjón með rekstri þess samkvæmt lögum FF. Hann sér um samskipti við lögmenn og opinbera aðila og meðferð einstaklingsmála. Umfjöllun um lög og reglugerðir í kjara- og réttindamálum, skóla- og menntamálum. Fulltrúi í stjórn KÍ og í stjórn Kjararáðs KÍ, samskipti og samstarf innan KÍ og vegna samskipta við önnur bandalög opinberra starfsmanna.

Sérfræðingur (50%)

Sérfræðileg ráðgjöf og aðstoð vegna samningagerðar við ríki, einkaaðila og vegna samningagerðar í skólum. Sérfræðileg ráðgjöf við túlkun á kjarasamningum, lögum og reglugerðum í kjara- og réttindamálum, lögum og reglugerðum um framhaldsskóla. Aðstoð við stjórnsýsluleg samskipti í kjara- og réttindamálum og vegna samskipta við önnur bandalög opinberra starfsmanna. Samskipti við háskólastofnanir, meðal annars vegna samstarfsnefndar KÍ og HÍ/menntavísindasviðs og vinnu við málefni kennaramenntunar. Gert er ráð fyrir að sérfræðingur sé fulltrúi félagsins vegna framhaldsskólastigsins í ýmsum nefndum og ráðum með ýmsum aðilum sem gerir kröfu um vinnu utan Kennarahússins.

Fulltrúi í skólamálum og félagsmálum (50%)

Formaður skólamálanefndar FF og faglegur ráðgjafi í skólamálum. Umfjöllun um fagleg málefni framhaldsskólastigsins og skólamál, fyrirsvar um þau og um málefni kennaramenntunar og símenntunar. Upplýsingasöfnun- og miðlun um skóla- og menntamál og verkefni á sviði norræns samstarfs. Samskipti við félagsdeildir um málefni þeirra og miðlun upplýsinga. Gert er ráð fyrir að fulltrúi sitji í ýmsum nefndum og ráðum vegna framhaldsskólastigsins með ýmsum aðilum sem gerir kröfu um vinnu utan Kennarahússins.

Stjórn

Um kosningu og hlutverk stjórnar félagsins er fjallað um í 12, 13. og 15. gr. laga FF. Stjórn fer með æðsta vald í málefnum þess milli aðalfunda og ber ábyrgð á allri starfsemi þess. Formaður ber ábyrgð á daglegri starfsemi félagsins og hefur yfirumsjón með rekstri þess. Varaformaður er staðgengill formanns. Stjórn hefur eftirlit með fjárreiðum þess og bókfærslu og leggur fram endurskoðaða reikninga á aðalfundi. Auk þess skal stjórn gefa fulltrúafundi yfirlit yfir fjárhagsstöðu félagsins. Allar launagreiðslur og þóknanir í stjórnum, nefndum og ráðum á vegum FF skulu vera í samræmi við lög KÍ.

Varaformaður

Varaformaður er staðgengill formanns, sbr. 13. gr. laga FF.

Ritari

Ritari hefur umsjón með ritun og varðveislu fundargerða, sbr. 14. gr. laga FF. Fundargerðir skulu bornar upp til samþykktar á stjórnarfundi. Birta skal ákvarðanir stjórnarfunda og dagskrá funda á vef FF.

Samninganefnd

Kosning og hlutverk samninganefndar er skv. 20. gr. laga FF. Hlutverk samninganefndar er að:

  • Ganga frá endanlegri kröfugerð.
  • Skipa viðræðunefnd úr sínum hópi eftir því sem við á.
  • Annast gerð kjarasamnings og kynningu hans.
  • Taka ákvörðun um hvort efna skuli til atkvæðagreiðslu um verkfall.
  • Taka ákvörðun um hvort undirrita eigi kjarasamning með fyrirvara um samþykki félagsmanna og um hvort fresta skuli verkfalli.

Erindrekar

Erindrekar úr stjórn og samninganefnd FF sinni skipulegum erindrekstri við félagsdeildir framhaldsskólanna. Hlutverk erindreka er að:

  • Heimsækja félagsdeildir a.m.k. einu sinni á ári og veita þeim ráðgjöf eftir þörfum.
  • Vera tengiliðir milli félagsdeilda, stjórnar og samninganefndar félagsins.
  • Koma upplýsingum frá félagsdeildum á framfæri við stjórn og samninganefnd.
  • Miðla upplýsingum til félagsdeilda frá félaginu og Kennarasambandinu.

Skólamálanefnd

Kosning og hlutverk skólamálanefndar er skv. 21. gr. laga FF. Hlutverk skólamálanefndar er að:

  • Fjalla um fagleg málefni og skólamál í samráði við stjórn félagsins og skólamálaráð KÍ.
  • Vinna að eflingu kennaramenntunar og símenntunar félagsmanna.
  • Annast tengsl við faggreinafélög og skólamálanefndir aðildarfélaga KÍ og skólamálaráð KÍ.

Stjórn FF boðar til samráðsfundar með skólamálanefnd FF a.m.k. einu sinni á ári.

Kynningarnefnd

Skipan og hlutverk kynningarnefndar er skv. 16. gr. laga FF. Hlutverk kynningarnefndar er m.a. að:

  • Efla umræðu um framhaldsskóla og starf þeirra.
  • Styrkja stöðu og ímynd framhaldsskólakennara.
  • Skipuleggja kynningar.

Stjórn FF setur kynningarnefnd starfsreglur. Kynningarnefnd gerir fulltrúafundi grein fyrir störfum sínum.

Kjörstjórn

Kosning og hlutverk kjörstjórnar er skv. 17. gr. laga FF. Kjörstjórn stýrir allsherjaratkvæðagreiðslu um stjórnarkjör og öðrum kosningum FF, sbr. 7., 8., 9. og 10. gr. laga FF, sem ekki heyra undir kjörstjórn Kennarasambands Íslands skv. 15. gr. laga þess. Fulltrúafundur setur reglur um störf kjörstjórnar og framkvæmd atkvæðagreiðslu.

Félagslegir skoðunarmenn reikninga

Kosning og hlutverk félagslegra skoðunarmanna reikninga er skv. 19. gr. laga FF. Hlutverk félagslegra skoðunarmanna reikninga er að bera saman fjárhagsáætlanir aðalfunda félagsins fyrir hvert kjörtímabil við ársreikninga félagsins. Stjórn FF kveður félagslega skoðunarmenn reikninga til starfa einu sinni á ári.

Stjórn Vísindasjóðs FF og FS

Kosning fulltrúa FF í sjóðsstjórn og hlutverk sjóðsstjórnar er skv. 22. gr. laga FF. Vísindasjóður er sameiginlegur sjóður félagsmanna Félags framhaldsskólakennara og félagsmanna Félags stjórnenda í framhaldsskólum og er tilgangur hans að stuðla að símenntun þeirra. Fjárframlög til sjóðsins eru kjarasamningsbundin iðgjöld vinnuveitenda af launum félagsmanna. Sjóðsstjórn er skipuð fulltrúum FF og FS sem skipta með sér verkum. Hlutverk sjóðsstjórnar er að hafa umsjón með fjármunum sjóðsins, setja sjóðnum úthlutunarreglur, endurskoða þær og afgreiða styrki til félagsmanna skv. þeim úthlutunarreglum sem gilda hverju sinni. Sjóðsstjórn setur nánari verklagsreglur fyrir starfsemi sjóðsins í samstarfi við stjórnir FF og FS. Verklagsreglum sjóðsins er einungis hægt að breyta að fenginni staðfestingu stjórna FF og FS.

Uppstillingarnefnd

Kosning og hlutverk uppstillingarnefndar er skv. 23. gr. laga FF. Hlutverk hennar er að leggja fram tillögur um frambjóðendur til kjörs formanns, meðstjórnenda, fulltrúa í stjórn Kennarasambands Íslands, félagslegra skoðunarmanna reikninga, fulltrúa í samninganefnd, formanns skólamálanefndar, fulltrúa í kjörstjórn, uppstillingarnefnd, stjórn Vísindasjóðs og til annarra trúnaðarstarfa sem aðalfundur kýs, sbr. jafnframt 10. grein laga FF. Áður en nefndin leggur fram tillögur um frambjóðendur skal liggja fyrir skrifleg staðfesting viðkomandi einstaklinga. Uppstillingarnefnd starfar eftir reglum sem stjórn félagsins setur. Starfsreglur skulu kynntar á fulltrúafundi FF og fyrir félagsdeildum.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli